Tryggingagjald

146. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 11:42:26 (6899)


[11:42]
     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það mun að sjálfsögðu reyna á það hvort það er meiri hluti fyrir þessu í þinginu eða ekki. Ég hygg að við verðum að láta þetta ganga fram eins og málið er sett upp núna, en hins vegar mun ég með mikilli ánægju taka þátt í því með hv. þm. að finna leiðir til þess að losa landbúnaðinn og aðra sjálfstæða atvinnurekendur út úr þessu tryggingagjaldi og út úr atvinnuleysistryggingakerfinu sem sýnt er að virki ekki.