Tryggingagjald

146. fundur
Mánudaginn 02. maí 1994, kl. 11:52:03 (6906)


[11:52]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er engin furða á því þótt hv. 6. þm. Vestf. verði hissa þegar skýringar koma fram á afstöðu manna í þinginu, í þessu tilviki minni afstöðu. Ég gat þess að ég hefði haft fyrirvara um stuðning við málið þegar það var rætt í mínum þingflokki. Og þegar menn hafa slíkan fyrirvara á sinni afstöðu kemur það að sjálfsögðu mönnum sem þar vitna um ekkert á óvart þó fyrir henni sé talað í þinginu.