Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Það hefur orðið samkomulag milli þingflokka, sbr. 48. gr. þingskapa, um að fyrstu ræðumenn hvers þingflokks hafi allt að 30 mínútur í fyrri umferð og ráðherra allt að 45 mínútur. Að öðru leyti gilda ákvæði 48. gr. um að ræðumenn hafi allt að 15 mínútur í hvort sinn.