[17:35]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég held ég verði að endurtaka það einu sinni enn að í niðurstöðum Ríkisendurskoðunar stendur skýrum stöfum: ,,Samanburður á mati tilboðsgjafa á framtíðartekjuvirði SR-mjöls hf. og mati VÍB bendir til að verðmæti fyrirtækisins hafi verið hærra en endanlegt kaupverð.``
Þetta eru orð Ríkisendurskoðunar í þessu máli. Það er ekkert verið að tala um hversu miklu hærra en það er sagt hærra. Hæstv. ráðherra getur ekkert haldið einhverju öðru fram hér í ræðustól.
Síðan er hann mjög ánægður með sig yfir því að hann hafi mismunað aðilum Haraldi Haraldssyni í vil. Mér finnst það skrýtið að koma í ræðustól hvað eftir annað til að hæla sér að því.
En ég endurtek það að það er líka undarlegt að hæstv. ráðherra skuli sækja sér vopnin í skýrsluna frá Ríkisendurskoðun þegar hann er að tala um þessi tilboð og þegar hann er að tala um að þessi frestur hafi verið lengdur en kemur síðan núna í ræðustól og fer að tala um allt aðra hluti. Það finnst mér furðulegt.