[23:23]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Herra forseti. Ég tók eftir orðavali hv. þm., hann var ráðherra í síðustu ríkisstjórn. Á meðan hann sat í henni var m.a. ráðist í það að selja hlutabréf í Þormóði ramma og er í skýrslu Ríkisendurskoðunar á þeim tíma mjög harðlega gagnrýnt hvernig var staðið að þeirri sölu og munar miklum fjárhæðum hversu minna fékkst fyrir hlutabréfin en eðlilegt var talið af Ríkisendurskoðun. Eins og ég sagði áður þá hefur síðar komið í ljós að hinir nýju eigendur standa vel að rekstri síns fyrirtækis og kunna til verka og þetta hefur orðið styrkur fyrir Siglufjarðarkaupstað.
Í annan stað ítreka ég það sem ég sagði áðan, skýringin á því að ríkissjóður þurfti að taka yfir skuldbindingar Síldarverksmiðja ríkisins var og er sú að fjárfestingin á Seyðisfirði var vitlaust tímasett. Það er auðvitað algjörlega út í hött að koma og draga það hér inn í umræðuna á einhverjum öðrum forsendum. Þeir menn sem eru yfirskoðunarmenn ríkisreiknings og fjalla um mál eins og þessi eiga auðvitað að tala um þetta með réttum hætti og í fullri alvöru en ekki að vera með skæting hér uppi sem er auðvitað ekki undarlegt af hv. þm. með hliðsjón af fortíð hans og með hliðsjón af því hvernig hann hefur í gegnum tíðina litið til einkavæðingar og heilbrigðs markaðsbúskapar.