Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 01:25:05 (7050)


[01:25]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. hefur gripið til nokkurra rangfærslna í vörn sinni í málinu. Hann sagði að við stjórnarandstæðingar hefðum haldið því fram að það ætti að draga 400 millj. frá kaupverðinu og

menn ættu þá með sama rétti bæta skuldunum við. Ég hef ekki haldið því fram. Hins vegar hef ég haldið því fram að niðurfelling skulda upp á 400 millj. og yfirtaka lífeyrisskuldbindinga upp á 140 millj. auki verðmæti fyrirtækisins. Það er hið rétta í málinu varðandi verðið.
    Í öðru lagi er það ekkert þakkarvert þó að þeir sem hafa fengið þetta fyrirtæki á hóflegu verði standi í skilum með kaupverðið. Ég þakka þeim það nú ekki.