[01:26]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Herra forseti. Í verðmatinu sem gert var var búið að taka tillit til þess að 400 millj. höfðu verið yfirteknar af ríkissjóði. Þegar Ríkisendurskoðun er að fjalla um verðmatið þá er hún að viðurkenna og tekur það beinlínis fram að það verðmat sé gert á eðlilegan og réttan hátt og gagnrýnir engan veginn hvernig það var gert. Ég mótmæli þess vegna algjörlega þeirri staðhæfingu að ég hafi á nokkurn hátt verið að fara með rangfærslur í mínu máli.