Sala ríkisins á SR-mjöli

148. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 01:27:05 (7052)


[01:27]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég vil benda á að hæstv. sjútvrh. sagði einnig í dag að nýir kaupendur yrði að snúa rekstrarafkomunni við um 150 millj. kr. á ári næstu fimm árin. Hann minntist ekkert á það, eins og það kæmi málinu ekkert við, að þessar skuldir hefðu verið felldar niður. En það munar 40--50 millj. kr. á ári í rekstrarhagræðingu.