[01:27]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Herra forseti. Hér var verið að minnast á meðaltalstap á sl. tíu eða tólf árum miðað við þann hagnað sem gert er ráð fyrir í verðmatinu á næstu tíu árum. Stór hluti þeirra skulda sem hér um ræðir er til kominn vegna mjög nýlegra fjárfestinga þannig að þessi athugasemd hv. þm. á ekki heldur við.