[02:59]
Finnur Ingólfsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það kom fram í máli hv. þm. Kristínar Einarsdóttur, formanns umhvn., að það væri búið að leggja mikla vinnu í þetta mál og það hefði tekið langan tíma. Af því hlýtur maður að draga þá ályktun að öll vinnubrögð sem snúa að málinu séu þannig að það sé vísindalega að öllu staðið. Því má ég til með að spyrja hv. þm. einnar spurningar. Hún leggur fram brtt., sem auðvitað gerir ráð fyrir þó nokkrum breytingum á frv. og ég hef sagt að sé til bóta. Í 2. tölul. 18. gr. frv. eru taldar upp ákveðnar fuglategundir og tímabil þegar þær skulu friðaðar en í brtt. hv. formanni nefndarinnar eru grágæsin og heiðargæsin sérstaklega teknar út og talið að veiðiþol þeirra sé meira en þeirra fugla sem tilgreindir eru í 2. tölul. 18. gr. Því vil ég spyrja hv. formann nefndarinnar: Hvaða upplýsingar liggja fyrir og frá hvaða aðila er þær að þessar tvær tegundir þoli meira álag skotveiðimanna en aðrar tegundir sem tilgreindar eru í 2. tölul.?