Stjórn fiskveiða

149. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 23:52:08 (7184)


[23:52]
     Frsm. 2. minni hluta sjútvn. (Stefán Guðmundsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef heyrt þessa ræðu áður hjá hv. þm. um fiskvinnslukvótann. En hv. þm. veit það jafn vel og ég að um það verður ekki friður. Það veit hv. þm. Það verður friður um það hjá sumum en ekki öllum. Útvegsmenn hafa lýst fullri andstöðu við það mál. Þess vegna bið ég hv. þm. enn og aftur að lesa brtt. okkar framsóknarmanna sem er sett fram sem málamiðlun í þessu máli.