Stjórn fiskveiða

149. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 23:57:00 (7189)


[23:57]
     Frsm. 2. minni hluta sjútvn. (Stefán Guðmundsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er nú svo að ég hélt ég gæti verið fljótari að finna og vitna til þess sem þeir segja hér þeir ágætu menn í grg. sinni, en því miður vinnst mér sjálfsagt ekki tími til þess og ég finn þetta ekki. En það væri merkilegt samt og fróðlegt fyrir hv. 16. þm. Reykv., Guðmund Hallvarðsson, að lesa bara yfir álit þeirra í þessum efnum. Mér gefst því miður ekki tími til þess. En það er hvergi af okkur framsóknarmönnum í þessu máli vikið að íslenskum sjómönnum. Það er alveg fáránlegt að halda slíku fram.