Veiting ríkisborgararéttar

150. fundur
Miðvikudaginn 04. maí 1994, kl. 13:14:53 (7232)


[13:14]
     Frsm. allshn. (Gísli S. Einarsson) :
    Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar frá allshn.
    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið með svipuðum hætti og verið hefur á undanförnum löggjafarþingum. Kannað var hvort umsóknir, sem nefndinni bárust, uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi. Til að auðvelda málsmeðferð fóru formaður og tveir nefndarmanna yfir umsóknir sem bárust nefndinni áður en nefndin í heild fjallaði um einstakar umsóknir með tilliti til fyrrgreindra skilyrða.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Ég vil leyfa mér, frú forseti, að geta þess að við umræður í nefndinni komumst við að samkomulagi um það að áður en þing kemur saman til starfa í haust verði starfsreglur nefndarinnar um veitingu ríkisborgararéttar endurskoðaðar. Ég tel rétt að láta þessa getið hér um leið og ég flyt þetta nál., sem eftirtaldir hv. þingmenn rita undir: Sólveig Pétursdóttir, Gísli S. Einarsson, Jón Helgason, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Tómas Ingi Olrich, Kristinn H. Gunnarsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Ingi Björn Albertsson.