Skýrsla um skuldastöðu heimilanna

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 13:50:29 (7291)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti kannast við það sem hv. 3. þm. Vesturl. nefndi hér um þessa skýrslu sem hann gerði að umræðuefni. Það er rétt sem kom fram hjá honum að langan tíma tók að setja hana saman og skrifstofa Alþingis rak á eftir því að fá þá skýrslu. Það var fylgst með því máli og forseti hefur ekki meira um það að segja.