Flugmálaáætlun 1994--1997

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 17:16:44 (7311)


[17:16]
     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Mitt andsvar að þessu sinni er kannski á þann veg að það flokkast varla sem andsvar heldur hitt að ég vil þakka hv. þm. Pálma Jónssyni fyrir að hafa gert grein fyrir þessu með einarðlegum hætti. Ég skil þetta svo að það sé unnið af fullum krafti að þessari rannsókn og þá verði ákvörðunartökunnar að vænta í beinu framhaldi af því og það tel ég auðvitað hið rökrétta að tengja þetta saman. Ég taldi engu að síður rétt að koma þessu á framfæri vegna þess að það verður að fara að skoða þetta á heildstæðari hátt en gert hefur verið á undanförnum árum.