Reynslusveitarfélög

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 21:46:59 (7327)


[21:46]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Sveitarfélaganefndin gerði á sínum tíma yfirlit yfir það sem hún taldi vera nauðsynlegar samgöngubætur á hinum ýmsu stöðum í tengslum við sameiningu sveitarfélaga og er sú skrá ef ég man rétt í einu af þeim þremur heftum sem hafa komið út við sameiningu sveitarfélaga. Það var farið yfir þann lista þegar var verið að veita aukið fjármagn til vegamála og þar var tekið tillit til einhverra af þeim samgöngumálum sem þar voru nefnd eða samgöngubótum. Ég man ekki í augnablikinu hver það voru, hef ekki þessa skrá við hendina, en ég er að vitna þar í yfirlit sem sameiningarnefndin setti fram í einni af sínum skýrslum varðandi nauðsynlegar samgöngubætur.