Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 22:25:01 (7335)


[22:25]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tel að peningar til þess að greiða húsaleigubætur hljóti að koma úr okkar sameiginlegu sjóðum. Sjálfsagt verður að skerða eitthvað sem í dag er ákveðið. Það verður sjálfsagt að skerða einhverja aðra pósta en ég tel samt sem áður að þetta mál sé það gott að það sé þess virði að skerða eitthvað annað ef nauðsyn krefur.