Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 22:52:51 (7342)


[22:52]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér fannst nú hv. þm. draga mjög úr andstöðu sinni í þessu svari og mátti nánast skilja það svo undir lokin að hér væri um fyrirvara að ræða, en að öðru leyti mundi hann samþykkja þetta frv. Og þá hlýt ég að líta svo á að það sé svar við því hvort hér sé um stjfrv. að ræða, að þetta sé það sem stjórnarflokkarnir hafa orðið ásáttir um að samþykkja.