Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 22:59:22 (7349)


[22:59]
     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Það er upplýst að hv. þm. Vilhjálmur Egilsson hefur sáð í grýtta jörð og auðvitað eru það honum mikil vonbrigði að hans flokksfélagar skuli ekki vera skilningsbetri á lögmál hagfræðinnar en kemur fram í þessari yfirlýsingu hans og ég ætla ekki að rengja það. Það virðist birtast í landsstjórninni allri að þeir hafi lítinn skilning á hagfræði.