Húsaleigubætur

152. fundur
Fimmtudaginn 05. maí 1994, kl. 23:26:04 (7357)


[23:26]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það með hv. 2. þm. Austurl. að það er miður að hann skuli ekki hafa haft þau áhrif í nefndinni að honum tækist að ná fram þeim breytingum sem hann hefði viljað gera á frv. ef þær eru í takt við það sem ég hef verið að benda á, en það hefur a.m.k. ekki komið fram í mín eyru hvaða breytingar hann vill gera á þessu frv. Að öðru leyti veit ég ekki hvað hefur gerst í hv. félmn. hvað þetta varðar.