[00:59]
Ingi Björn Albertsson (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Jónu Valgerði Kristjánsdóttur þegar hún fór fram á að fundi yrði nú slitið en ég hef ekki heyrt svör úr forsetastóli við þeirri ósk þingmannsins. Það er alveg ljóst að við höfum verið hér fram á nætur alla vikuna, mánudaginn til kl. 4 um nóttina og þriðjudaginn aftur til kl. 4, miðvikudaginn til miðnættis og núna er klukkan byrjuð að ganga tvö að nóttu. Þetta er náttúrlega engin hemja að halda þingmönnum með þessu móti. Alla dagana hefur síðan verið byrjað ýmist kl. 10.30 eða 10 að morgni þannig að ég vil í mestu vinsemd fara fram á það og taka undir með hv. þm. að hér verði nú látið staðar numið, umræðu frestað og fundi slitið.