[01:59]
Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Halldór Ásgrímsson) :
Herra forseti. Ég gæti áreiðanlega rætt við hæstv. fjmrh. um skattamál hér í alla nótt, en hef engan vilja til þess, enda ekki staður og stund til að fara út í almenna skattamálaumræðu. En ég get þó ekki annað en gert athugasemd við það sem hann sagði hér þegar hann lýsti því yfir að ríkið tapaði rúmlega 100 millj. á þessari breytingu og þær tekjur þyrfti að fá inn aftur.
Ég get ekki alveg fallist á þá útreikninga sem þarna liggja að baki af þeirri einföldu ástæðu að 0,15% tryggingagjald við þær aðstæður sem eru í dag mun hafa þau áhrif að afkoma fyrirtækjanna mun versna og umsvifin í þjóðfélaginu munu minnka. Þar af leiðandi verður afleiðingin meira atvinnuleysi og minni velta hjá ríkinu. Það má vel vera, að það sé talið svo lítið að það mælist ekki en í jafnviðkvæmu ástandi og nú er ég viss um að þau eru veruleg.
Ég minni líka á það að við það að létta þessum sköttum af ferðaþjónustu og hugbúnaði þá eykst hagnaður þeirra aðila eða tap minnkar þannig að tekjuskattur verður þá meiri og velta og umsvif þeirra fyrirtækja munu aukast. Þessi áhrif eru enn þá meiri í efnahagsástandi eins og við nú búum við.
Hæstv. ríkisstjórn hefur gert lítið af því að reikna slík heildaráhrif því auðvitað skiptir það meginmáli í ákvörðunum sem þessum hvort þjóðartekjur muni vaxa og þar af leiðandi batni afkoman almennt fyrir þjóðarbúið. Þetta eru að sjálfsögðu ekki auðveldir útreikningar en ég hef fulla ástæðu til að ætla að þessi lækkun ein og sér muni í reynd ekki kosta ríkissjóð nema mjög lítið og þar af leiðandi er ég þeirrar skoðunar að sú hækkun sem hér er verið að leggja til kunni að verða til þess að ríkissjóður tapi verulegum tekjum þannig að ég vildi benda á þessi atriði og koma þeim á framfæri. Því miður er ég að tala hér í annað skiptið þannig að ég hef ekki möguleika á því að ræða mikið oftar við hæstv. fjmrh. en ef hann vill halda umræðunni áfram þá getum við það sjálfsagt síðar undir einhverju öðru máli því að öll umræða um þessi mál er gagnleg og við ættum að reyna að varpa meira ljósi á ýmsar afleiðingar af ákvörðunum í skattamálum.