[02:28]
Ingi Björn Albertsson (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins inna eftir því hversu lengi hæstv. forseti hyggst halda þessum fundi gangandi. Eftir því sem mér skilst eru fundir kl. 8 í fyrramálið og klukkan er nú orðin hálfþrjú. Ég tel það því brýnt að vita hversu lengi umræðan á að standa þannig að einhverjir menn geti hugsanlega farið nú þegar af vettvangi og aðrir stillt sig svolítið inn á það.