Varamaður tekur þingsæti

153. fundur
Föstudaginn 06. maí 1994, kl. 16:35:17 (7506)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf, dagsett í dag, 6. maí:
    ,,Þar sem ég er á förum úr borginni í einkaerindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþfl. í Austurl., Hermann Níelsson íþróttakennari, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Gunnlaugur Stefánsson, 5. þm. Austurl.``


    Hermann Níelsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.