Söfnunarkassar

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 12:52:27 (7630)


[12:52]
     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Eins og fram kom við umræðu hér í gær er ég andvíg þessu frv. Ég vil benda á að nafnið á frv. er rangt. Hér er ekki um söfnunarkassa að ræða heldur spilakassa og það er allt annað. Þess vegna er nafnið á frv. mjög villandi. Ég tel, og það á við hið fyrra mál sem ég var einnig andvíg sem hér var afgreitt síðast, að þetta séu tæki sem eru ósæmileg, hættuleg og ættu ekki að sjást á Íslandi. Ég segi að sjálfsögðu nei.