Áburðarverksmiðja ríkisins

155. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 16:50:27 (7669)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur hugleitt þessar óskir hv. þm. sem hér hafa komið fram og beinir því til hv. þm. að það mál sem nú er til umræðu og er á dagskránni megi halda áfram um sinn meðan verið er að kanna um framhaldið. Fallist menn á þessa tilhögun tekur sá sem er næstur á mælendaskrá um Áburðaverksmiðjuna til máls á meðan verið er að athuga með framhaldið. Síðan mun forseti upplýsa niðurstöðu strax og hún liggur fyrir. Forseta sýnist á svipbrigðum manna að fallist sé á þessa málsmeðferð og þakkar fyrir það.