Röð mála á dagskrá, afgreiðsla þingmála og viðvera ráðherra

156. fundur
Mánudaginn 09. maí 1994, kl. 10:51:03 (7691)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Sá tími er senn liðinn sem umræða um störf þingsins í upphafi fundar má standa. Forseti vill upplýsa að hæstv. utanrrh. er á leiðinni til fundarins og gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að hæstv. viðskrh. verði hér einnig.