[15:44]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Frú forseti. Það kom fram fyrr við þessa umræðu að ég væri tilbúinn til þess í ljósi þeirra umræðna sem fram höfðu farið að beita mér fyrir því að önnur útfærsla yrði á því frv. sem hér liggur fyrir. Hugmynd mín var þá sú að í stað þess að afnema lagaákvæðin þá yrðu þau gerð óvirk og ráðherra fengi síðan heimild að tilteknum skilyrðum uppfylltum að gera þau virk á nýjan leik. Í samræmi við þetta hef ég lagt fram brtt. sem felur efnislega þessi ákvæði í sér og heimila sjútvrh. að ákveða að inn- og útgreiðslur hefjist að nýju þegar leyfilegur árlegur heildarafli af þorski fer yfir 250 þús. lestir.
Ég vænti þess að þessi brtt., eins og hún liggur hér fyrir, geti greitt fyrir afgreiðslu málsins á þann veg eins og ráð er fyrir gert í frv. um ráðstöfun á fjármunum hans og síðan með þeirri breytingu sem þessi tillaga gerir ráð fyrir.