Sjónvarpsútsendingar frá þingfundum

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 10:15:33 (7776)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti mun ræða við hv. 4. þm. Austurl. um það erindi sem hann bar hér fram í upphafi þessarar umræðu. En forseti vill jafnframt láta þess getið að þegar blaðaauglýsingar birtust í gær um fyrirhugaðar sjónvarpsútsendingar á Sýn þá spurðist skrifstofa þingsins fyrir um það hvort hætta yrði á einhverri truflun á útsendingu frá þingfundinum en fékk þau skýlausu svör að svo yrði ekki, útsendingar frá Alþingi gengju fyrir. Því voru menn hér á Alþingi grunlausir um að nokkuð yrði gengið á rétt þingsins í þessu efni, en annað kom í ljós eins og hér hefur komið fram.