[14:10]
Guðni Ágústsson (um fundarstjórn) :
Hæstv. forseti. Ég stenst ekki mátið að gera athugasemd þegar flótti er brostinn í ríkisstjórnarliðið og hér situr einungis eftir hæstv. félmrh. sem að vísu fer með málefni heimilanna en það er ekki við hæstv. félmrh. einan að tala. Hér var hæstv. fjmrh. í morgun. Nú er sætið autt og hann horfinn á braut. Við hljótum að gera kröfur til þess að einhver af ráðherrum Sjálfstfl. sem bera höfuðábyrgð á því hvernig málefni heimilanna hafa þróast, þeir bera ábyrgð á skattastefnunni sem hér hefur verið rekin, þeir bera höfuðábyrgð á þessari ríkisstjórn, þeir hljóta að verða að vera hér viðstaddir --- og gleður mig nú að sjá hæstv. forsrh. hér nálægan og vænti ég þess að hann fylgist með þessari umræðu og kalli sína menn til því hér fer fram einhver mikilvægasta umræða dagsins. Ég hef ekki í þessari umræðu heyrt neinar tillögur frá ríkisstjórninni um hvernig hún ætlar að bregðast við þessari svörtu skýrslu. Hæstv. forseti, það er krafa mín að einhverjir hæstv. ráðherrar Sjálfstfl. verði hér við. Það má auðvitað segja að hæstv. utanrrh. beri þyngri ábyrgð heldur en hæstv. félmrh., á því hvernig staðan er orðin í þessu þjóðfélagi. Hann var sá sem í Viðey var forðum og töskuna bar með hæstv. forsrh.