[14:54]
Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég hef enn ekki fengið svar við því frá hv. þm., sem mér er fullkunnugt um að sat hér á þingi og studdi þá ríkisstjórn sem við erum að ræða um, ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, hvort hann væri ekki meðvitaður um það að svo var talið að það væri nauðsynlegt að setja bráðabirgðalög á þessa samninga til að ógilda þá. Er honum ekki kunnugt um þetta? Og hver var hans ábyrgð á þessu? Það er ekki verið að tala um hagfræðikenningar mínar, það er verið að tala um hinar hörðu staðreyndir. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki hægt að láta þessa samninga standa og neyddist því til að setja bráðabirgðalög á þá. Með öðrum orðum að samningarnir sem gerðir höfðu verið voru verðbólgusamningar að mati ríkisstjórnarinnar.