[14:58]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Nei, það er nú öðru nær. Ég er alveg óhræddur við dóm sögunnar um þessi tvö tímabil. Og það er reyndar rangt hjá hv. þm. að efnahagsaðstæður hafi almennt verið verri núna síðustu árin heldur en þau sem á undan voru. Ég held að það sé ekki nokkur leið að neita því að að mörgu leyti var hið mikla hrap útflutningstekna eftir góðærið 1987, sem ríkisstjórn Sjálfstfl. klúðraði reyndar algerlega, eins og frægt er, miklu erfiðara viðfangs heldur en sá tími sem núna hefur liðið með tiltölulega litlum breytingum á útflutnings- og þjóðartekjum milli ára. Það er nú staðreynd og kom reyndar í ljós að árin 1991 og 1992 voru bara þokkalegustu ár þegar þetta var mælt.
Staðreyndin er þessi: Það sem upp úr stendur eftir þetta kjörtímabil, sem er betur sem fer senn á enda og vonandi fer hæstv. ríkisstjórn að gera sjálfri sér og þjóðinni þann greiða að teygja upp tærnar, er þetta stóraukna atvinnuleysi og stórauknar skuldir heimilanna. Og það er alveg sama hvernig hv. þm. Sjálfstfl. rembast hér eins og rjúpan við staurinn, þessar staðreyndir munu þeir ekki þurrka út af spjöldum sögunnar og vörn þeirra í fortíðinni er ónýt gagnvart þeim hrikalegu vandamálum sem brenna á íslenskum almenningi í dag.