Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 15:13:26 (7831)


[15:13]
     Petrína Baldursdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðni Ágústsson þarf ekki að benda mér á auðu stólana, ég sé þá. Það er alveg á hreinu. En það væri svolítið gaman einu sinni að heyra lausnir stjórnarandstöðunnar á þeim málum sem við blasa, það væri mjög gaman. Það væri innleg í umræðuna þó ekki væri meira.