Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 16:06:17 (7848)


[16:06]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þingmenn hafa ýmsar þungbærar skyldur. Ein af þeim hefur síðustu tvo sólarhringa verið sú að ég hef þurft að gegna þeirri þungbæru skyldu að hlusta á allar ræður hv. þm. og horfa á hann flytja þær.