Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 17:26:35 (7864)


[17:26]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Félmrn. ber ekki ábyrgð á því hverja framkvæmdaraðilar velja til þess verks að reisa félagslegar íbúðir. Það eru framkvæmdaraðilar sem gera það sjálfir og það eru í flestum tilvikum sveitarfélögin. Ég get undir það tekið með hv. þm. að það má benda á mörg tilfelli þar sem ekki hefur verið nægilega vel að staðið í því efni.