Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 17:27:04 (7865)


[17:27]
     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hæstv. félmrh. sagði að misréttið og misskiptingin í þjóðfélaginu væri ekki alfarið sök ríkisstjórnarinnar. Það er sjálfsagt rétt. En mig langar til þess að fá svar við spurningunni: Telur hæstv. félmrh. að misréttið og misskiptingin hafi aukist eða minnkað á sl. þremur árum?