Skuldastaða heimilanna

157. fundur
Þriðjudaginn 10. maí 1994, kl. 17:29:04 (7868)


[17:29]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mig minnir að það séu eitt eða tvö ár síðan ég fór töluvert yfir misskiptinguna í eigna- og tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu og hvernig hún hefði vaxið. Mig minnir að þar hafi verið fleiri ár undir heldur en það eina ár sem þá lifði af kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar. Mig minnir að þar hafi komið fram allstórar tölur um það hvernig misskiptingin hefði vaxið í þjóðfélagið áður en þessi ríkisstjórn kom að.