[23:01]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Frú forseti. Mér þykir miður þegar hv. 4. þm. Norðurl. e. leiðir hjá sér þegar vel og hlýlega er talað um ræðumennsku hans, en geri nú ekki frekari athugasemdir þar við.
Varðandi 8. gr. frv., sem hv. þm. vitnaði til, þá er hún í fullu samræmi við aðrar breytingar. Það er auðvitað svo að það er ekki ætlunin að borga úreldingarstyrki ef menn ætla að halda áfram rekstri viðkomandi skips. Í frv. til laga um stjórn fiskveiða er verið að opna möguleika fyrir því, sem er nýmæli, að menn geti haldið áfram rekstri skips þó að það hafi ekki veiðileyfi innan íslenskrar landhelgi. En það er ekki með því frv. sem hér liggur fyrir um Þróunarsjóð, sem byggir í meginatriðum á sömu reglum um úreldingu og gilt hafa að undanförnu og settar voru í tíð fyrri ríkisstjórnar, ætlunin að fara að greiða styrki til þeirra sem halda áfram útgerðarrekstri, þó utan landhelgi sé. Ég vona að þetta upplýsi hv. þm. um efni þessa ákvæðis.