Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

157. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 01:41:33 (7919)


[01:41]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. sagði hér áðan að það yrði ekki litið fram hjá vanda Vestfirðinga. Það skil ég og virði. Nú liggur fyrir úttekt á vanda atvinnulífsins á utanverðu Snæfellsnesi. Hvernig getur hæstv. ráðherra litið fram hjá þeim vanda? Úttektin liggur fyrir. Vandinn liggur fyrir. Hvernig er hægt að horfa fram hjá þeim vanda?