[01:42]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það kom ekkert fram í mínum orðum nema síður væri um að það stæði til að líta fram hjá þeim vanda. Þvert á móti var undirstrikaður sá ásetningur sem fram kemur í þeim kafla sem að málinu lýtur í fskj. I með frv. Ég hygg að það lýsi málinu. Öll sú grundvallarvinna sem hefur átt sér stað mun auðvitað auðvelda það að á því máli sé tekið. Það er ekkert í mínu máli sem bendir til þess að það sé hugsun mín eða ríkisstjórnarinnar að líta fram hjá þeim vanda sem hv. þm. nefndi sérstaklega.