[12:24]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég tel fyrst og fremst, ég nefndi það ekki í ræðu minni áðan, eðlilegt að menn gangi frá þeim viðaukum sem við erum hér að fjalla um. Jafnframt tel ég að ályktun Alþingis auðveldi okkur þennan þátt sem hv. þm. nefndi því að Alþingi hefur átt frumkvæði að því að opna málið og leggja áherslu á að það vildi hafa mótandi áhrif á framhaldið, gerði sér grein fyrir þeim breytingum sem eru að verða. Ég tel jafnframt að ósk mín um fundi með framkvæmdastjóra bandalagsins ýti undir þessa þætti. Ég tek undir með hv. þm. að á næstu mánuðum eigum við sameiginlega að móta stefnu okkar til þessara viðræðna og við séum að ræða um haustmánuðina sem við eigum að nota til þessara viðræðna.