Kjarasamningar opinberra starfsmanna

158. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 14:58:59 (7970)


[14:58]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég vil að fram komi við þessa atkvæðagreiðslu að ég tel rétt að leita samráðs við fulltrúa samtaka opinberra starfsmanna um hvernig þessar breytingar á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna sem fela í sér rétt þeirra til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði verði best tryggðar í framkvæmd. Ég segi já.