[18:38]
Frsm. félmn. (Guðjón Guðmundsson) :
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um till. til þál. um rannsóknir á ástæðum og afleiðingum ofbeldis gegn konum á Íslandi. Þessi tillaga hefur fengið hraða afgreiðslu hjá nefndinni. Henni var fyrst vísað þangað 6. apríl sl. Tillagan var ekki send til umsagnar, en formaður félmn. lagði mikla áherslu á að hún yrði afgreidd frá nefndinni fyrir þinglok.
Nefndin fjallaði um málið og varð sammála um að mæla með samþykkt tillögunnar með svofelldum breytingum sem fram koma á þskj. 1295.
1. Tillögugreinin orðist svo:
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa nefnd er undirbúi og hafi umsjón með rannsóknum á ástæðum, afleiðingum og umfangi heimilisofbeldis, svo og annars ofbeldis gegn konum og börnum.
Nefndin geri tillögur um úrbætur og gangi frá skýrslu um málið sem lögð verði fyrir Alþingi.
Nefndin skili áfangaskýrslum um störf sín eftir því sem þeim miðar fram en lokaskýrslan verði lögð fram á haustþingi 1995.
2. Fyrirsögn tillögunnar orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um rannsóknir á heimilisofbeldi, svo og öðru ofbeldi gegn konum og börnum á Íslandi.
Undir nál. rita allir nefndarmenn í félmn.