Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:48:01 (8017)

[18:48]
    Tómas Ingi Olrich :
    Virðulegi forseti. Í forsendum þessa máls eru þeir erfiðleikar atvinnulífsins sem rekja má til aflasamdráttar of þröngt skilgreindir. Ekki er tekið tillit til fjölmargra annarra þátta sem hafa leitt til mikilla staðbundinna þrenginga í atvinnulífi víða um landið og því mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.