Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:48:34 (8018)


[18:48]
     Árni Johnsen :
    Virðulegi forseti. Í því máli sem kemur nú til atkvæða er ekki skilgreint formlega að fyrirtæki eða félög annars staðar á landinu en á Vestfjörðum muni njóta fyrirgreiðslu á sömu forsendum og gert er ráð fyrir í frv. þó að sambærilegur vandi sé staðreynd víða um land og sérstaða Vestfjarða að því leyti lítil, þótt vissulega sé þar við mikinn vanda að glíma. Hér er því fyrst og fremst um mismunun að ræða í garð annarra landshluta, fyrirtækja og félaga og því sit ég hjá við þessa atkvæðagreiðslu.