Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 18:51:32 (8021)


[18:51]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að það ber mikla nauðsyn til að aðstoða fyrirtæki víðar en á Vestfjörðum. Hins vegar er sjávarútvegurinn svo stór þáttur í atvinnulífi Vestfirðinga að það ber brýna nauðsyn til að taka á þeim í þeim landshluta og á þeim forsendum segi ég já við þessu frv.