Þingfrestun

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 20:32:14 (8058)


[20:32]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Forseti Íslands hefur ritað svofellt bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, frá 11. maí 1994 eða síðar ef nauðsyn krefur, enda verði þingið kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 17. júní 1994.
Gjört að Bessastöðum, 11. maí 1994.

Vigdís Finnbogadóttir.



_____________


Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.