Framhaldsfundir Alþingis

160. fundur
Fimmtudaginn 16. júní 1994, kl. 10:03:54 (8060)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Ég vil bjóða hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa á ný. Fundir Alþingis í dag eru til undirbúnings hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum á morgun í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins svo sem sú dagskrá sem útbýtt hefur verið ber með sér.
    Gott samkomulag hefur tekist milli þingflokka og forseta um fyrirkomulag þinghaldsins hér í dag. Gert er ráð fyrir tveimur stuttum þingfundum og að þingstörfum geti lokið á tólfta tímanum.