Þingfrestun

162. fundur
Föstudaginn 17. júní 1994, kl. 11:47:03 (8083)


[11:47]
     Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir) :
    Ég les nú forsetabréf sem gefið hefur verið út um frestun funda Alþingis.
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, með skírskotun til samþykkis Alþingis, fresta fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, frá 17. júní 1994 og standi sú frestun til septemberloka.
Gjört í Reykjavík, 16. júní 1994.

Vigdís Finnbogadóttir.



_____________


Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu bréfi sem ég nú hef lesið lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 117. löggjafarþings, er frestað.
    Óska ég þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.
    [Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]