[13:35]
Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
Borist hafa þrjú bréf um afsal þingmennsku. Fyrsta bréfið er dags. 14. júní 1993 og er á þessa leið:
,,Þar sem ég hef ákveðið að hverfa til annarra starfa leyfi ég mér að tilkynna yður að ég afsala mér þingmennsku.
Ég þakka yður og öðrum þingmönnum ánægjulegt samstarf og óska Alþingi og þeim sem þar starfa farsældar á komandi árum.
Jón Sigurðsson, 4. þm. Reykn.``
Annað bréfið er dags. 27. ágúst 1993.
Eiður Guðnason, 4. þm. Vesturl.``
Þriðja bréfið er dags. 20. september 1993 og er svohljóðandi:
,,Þar sem ég hef verið skipaður forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og tek við því starfi 1. okt. nk., afsala ég mér þingmennsku frá og með þeim degi.
Karl Steinar Guðnason, 6. þm. Reykn.``
Í stað Jóns Sigurðssonar tekur sæti á Alþingi Guðmundur Árni Stefánsson, heilbr.- og trmrh., og verður hann 6. þm. Reykn. Guðmundur Árni Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.
Í stað Eiðs Guðnasonar tekur sæti á Alþingi sem 4. þm. Vesturl. Gísli S. Einarsson. Gísli S. Einarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.
Í stað Karls Steinars Guðnasonar tekur sæti á Alþingi Petrína Baldursdóttur og verður 11. þm. Reykn. Rannveig Guðmundsdóttir verður framvegis 4. þm. Reykn. eftir þessar breytingar.
Kjörbréf Petrínu Baldursdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi. Henni ber því að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.
Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
Borist hafa þrjú bréf um afsal þingmennsku. Fyrsta bréfið er dags. 14. júní 1993 og er á þessa leið:
,,Þar sem ég hef ákveðið að hverfa til annarra starfa leyfi ég mér að tilkynna yður að ég afsala mér þingmennsku.
Ég þakka yður og öðrum þingmönnum ánægjulegt samstarf og óska Alþingi og þeim sem þar starfa farsældar á komandi árum.
Annað bréfið er dags. 27. ágúst 1993.
,,Þar sem ég hef verið skipaður sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands og tek við því starfi 1. sept. nk., afsala ég mér þingmennsku frá og með þeim degi.